26.9.2012 | 11:31
Brynjar Níelson í vitlausum flokki.
Nú ætlar einn af helstu varðhundum gamla Íslands að bjóða sig fram fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Það sem helst vekur athygli mína eru þau mál sem Brynjar setur á oddinn.
"Þótt ég hafi ekki áður komið að pólitísku starfi innan Sjálfstæðisflokksins hafa skoðanir mína og flokksins jafnan farið saman í meginatriðum og mér er hugleikin baráttan fyrir réttarríkinu, frelsi einstaklingsins til orða og athafna, sem og hið opna frjálsa þjóðfélag. Að þessum grunnstoðum borgaralegs samfélags er vegið freklega nú á tímum."
Sjálfstæðisflokkurinn hefur byggt upp "réttarríkið" Ísland þar sem flokksgæðingar komast í stöður dómara og flokksgæðingar eins og Baldur greyið Guðlaugsson klaufast til þess að láta dæma sig er tekið með silkihönskum á meðan búðahnupplurum og göturæningjum er refsað af hörku.
Frelsi einstaklingsins eru settar skorður í stéttarskiptingu þar sem kostnaður einstaklinga til náms og heilsugæslu verður æ meiri og frelsi einstaklinga er njörvað niður í fátækt og umkomuleysi.
Hinu opna þjóðfélagi er stjórnað af fámennri elítu sem flokkurinn hefur valið til auðs og valda sem heldur aftur af frelsi hins almenna borgara.
Brynjar er þó í réttum flokki ef hann vill viðhalda óréttlætinu og halda bæði auð og völdum hjá sér og sínum líkum sem einokað hafa íslenskt samfélag frá lýðveldisstofnun.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.